Úr Hörpustrengjum.
Besti vinur á jörð er Jesús, jafnan þegar mætir sorg og neyð.
Hann fær þerrað heitust tár , hann fær læknað dýpstu sár.
Besti vinur á jörð er Jesús.
Kór: :,: Minn einasti vin er Jesús:,: leita ég hans hjálpar hér.
Hann mig ber á örmum sér. Besti vinur á jörð er Jesús.
2. Ó hvað Guðs son er góður vinur! Gegnum tár mér skín hans friðarsól.
Í hans skauti ég mig fól. Ó það blessað friðarskjól!
Besti vinur á jörð er Jesús.
3. Þótt ég dvelji í dimmum skugga. Dynji Jórdans bylgjur kringum mig,
Hug minn enginn ótti slær af því Drottinn minn er nær. Besti vinur á jörð er Jesús.
4. Nær í ljóssalinn loks vér komum, lítum vér hans náðarauglit bjart.
Sætt vér honum syngjum prís, sælir Guðs í Paradís.
Besti vinurinn vor er Jesús.
Peter Bilhorn - Sbj.Sv.
Þú sem þetta lest, ef til vill hefur þessi dagur verið einn af
erfiðustu dögum lífs þíns. Mundu þá:
Vertu skjótur til sátta við andstæðing þinn, meðan þú ert enn á veginum með
Honum Matt 5:25.
Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða Matt 5:7.