Þóra Guðrún Pálsdóttir |
|
Blogghistorik: 2011 N/A Blog|Month_311.03.2011 19:19PASSÍUSÁLMARPassíusálmar voru lesnir á þessum tíma vetrar á því heimili, þar sem ég ólst upp. Faðir minn las sálmana og einnig Vigfúsar hugvekjur sem pössuðu við efni sálmanna, ein hugvekja við hvern sálm. Ég man ekki svo mikið eftir þessu en þó man ég eftir að hafa legið upp í rúmi tilbúin undir svefninn, því lesið var á kvöldin og enn í dag get ég stundum haldið áfram með setningar ef ég heyri fyrripart lesinn. Þetta voru bestu skilyrði hjá mér að hlusta og mér fannst Jesús hafa verið góður. Að auki fékk ég tilfinningu fyrir rími og stuðlum. Það er svo miklu léttara að læra og muna það, sem þannig er tilreitt, annars eins og vanti matarlím í búðing, setningar loða ekki saman í minninu. Ég læt hér koma 6 vers úr fyrsta sálmi.
1.Sálmur Um herranns Kristi útgang í grasgarðinn. Með himnalag
upp mitt hjarta og rómur með. Hugur og tunga hjálpi til, Herrans pínu ég minnast vil.
Skulum vér allir jörðu á kunngjöra þá kvöl og dapran deyð, sem Drottinn fyrir oss auma leið.
langaði víst að deyja hér, mig skyldi og lyst´ að minnast þess mínum Drottni til þakklætis.
æ, hvað er lítil rækt í mér. Jesús er kvalinn í minn stað, of sjaldan hefi ég minnst á það.
sem hefur oss við Guð Drottinn vorn fordæmda aftur forlíkað, fögnuður er að hugsa um það.
En heilög Drottins pín´og kvöl? Hvað heftir framar hneyksli og synd en Herrans Jesú blóðug mynd. N/A Blog|WrittenBy Þóru Pálsdóttur
Antal sidvisningar idag: 451 Antal unika besökare idag: 3 Antal sidvisningar igår: 411 Antal unika besökare igår: 24 Totalt antal sidvisningar: 180758 Antal unika besökare totalt: 32569 Uppdaterat antal: 4.7.2025 03:12:44 |
Arkiv
Länkar |
© 2025 123.is | Registrera dig för 123.is | Kontrollpanel